Sótt er um leyfi til að hækka þak, byggja tvo kvisti og svalir, innrétta svefnherbergi og
baðherbergi í risi og breyta innra skipulagi á 2. hæð, einnig er gerð grein fyrir áður gerðum
breytingum sem felast í að innra skipulagi hefur verið breytt í kjallara og á 1. hæð,
innréttað íbúðarherbergi í hluta bílskúrs og byggð köld geymsla í garði einbýlishúss á lóð
nr. 9 við Hrefnugötu.
Erindi fylgir yfirlit breytinga, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 9. mars 2026 og
umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. mars 2026.
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. mars 2026.