Sótt er um leyfi til að hækka þak, byggja tvo kvisti og svalir, innrétta svefnherbergi og
baðherbergi í risi og breyta innra skipulagi á 2. hæð, einnig er gerð grein fyrir áður gerðum
breytingum sem felast í að innra skipulagi hefur verið breytt í kjallara og á 1. hæð,
innréttað íbúðarherbergi í hluta bílskúrs og byggð köld geymsla í garði einbýlishúss á lóð
nr. 9 við Hrefnugötu.
Erindi fylgir yfirlit breytinga, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 9. mars 2026, umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 17. mars 2026 og bréf hönnuðar dags. 27. apríl 2026.
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.