Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 366
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um götulýsingu við við Lokinhamra, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 17. desember 2025.
Svar

Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Brýnt er að auka lýsingu á göngu- og hjólastíg, sem liggur frá Gullinbrú upp að Lokinhömrum. Um er að ræða fjölfarna gönguleið skólabarna úr Bryggjuhverfi í Hamraskóla.