Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Brýnt er að ráðast í peruskipti/viðgerð á götulömpum við Árskóga og Álfabakka. Að minnsta kosti þrír ljósastaurar við Árskóga eru óvirkir, þar af tveir við horn Skógarsels og annar þeirra við gangbraut. Á Álfabakka eru fimm ljósastaurar óvirkir á kafla milli afreinar af Reykjanesbraut og Árskóga.