Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 365
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í desember 2025, vegna nýs deiliskipulags fyrir Hátún 10-12 (Hátúnsreitur). Tilgangur skipulagslýsingarinnar er að greina frá svæðinu, áherslum og markmiðum við skipulagsgerðina, forsendum sem liggja að baki og fyrirhuguðu skipulagsferli. Lýsingin tekur til ofangreindra lóða þar sem til stendur að fara í uppbyggingu á lóðunum í kring um núverandi byggingar á u.þ.b. 43.000 m2 sem aðallega fara undir nýjar íbúðir en einnig skrifstofur, námsmannaíbúðir, þjónustu og skóla.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, Skrifstofu reksturs og umhirðu, Skrifstofu umhverfisgæða, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Skóla- og frístundasviði og Velferðarsviði, Skipulagsstofnun, Veitum, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Vegagerðinni, Strætó bs., Betri Samgöngum, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Hverfisráðum, íbúasamtökum og núverandi íbúum og rekstraraðilum á reitnum og kynna hana fyrir almenningi.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102923 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012416
Síðasta markaðsverð
19.500.000 kr.
Einbýli · 91 m² · 29.12.2023
Kaupskrá 3 eignir
19.500.000 kr. 29.12.2023
Einbýli · 91 m² · 3 herb. · bygg. 1959 · HMS
70.000.000 kr. 14.06.2022
Einbýli · 185 m² · 5 herb. · bygg. 1956 · HMS
29.000.000 kr. 31.03.2017
Einbýli · 205 m² · 4 herb. · bygg. 1974 · HMS
Deiliskipulag
Deiliskipulag fyrir Hátún 10, 12 og 14
Samþykkt 07.12.1993 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag