Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 371
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í desember 2025, vegna nýs deiliskipulags fyrir Hátún 10-14 (Hátúnsreitur). Tilgangur skipulagslýsingarinnar er að greina frá svæðinu, áherslum og markmiðum við skipulagsgerðina, forsendum sem liggja að baki og fyrirhuguðu skipulagsferli. Lýsingin tekur til ofangreindra lóða þar sem til stendur að fara í uppbyggingu á lóðunum í kring um núverandi byggingar á u.þ.b. 43.000 m2 sem aðallega fara undir nýjar íbúðir en einnig skrifstofur, námsmannaíbúðir, þjónustu og skóla. Lýsingin var kynnt frá 8. janúar 2026 til og með 5. febrúar 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Kynnt.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks taka undir sjónarmið Íbúasamtaka Laugardals og skóla- og frístundasviðs hvað innviði varðar sem komnir eru að þolmörkum. Hvorki grunnskólar né leikskólar hverfisins rúma aukinn íbúafjölda svo mikilvægt verður að huga að innviðum samhliða frekari uppbyggingu. Þá hefur Laugarnesskóli haft afnot af íþróttahúsnæði á svæðinu sem ekki má skerða án þess að annað komi í staðinn.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Borgarfulltrúi Viðreisnar fagnar uppbyggingu og þéttingu á reitnum. Mikilvægt er að taka tillit til umsagna íbúasamtaka hvað varðar skóla og leikskóla innviði og því fagnar Viðreisn hugmyndum um uppbyggingar leikskóla og fallegu innsvæði innan reitsins. Huga verður hins vegar að fjárhagshlið verkefnisins hvað varðar að lóðarhafar hafa að öllum líkindum fengið reitinn á niðurgreiddu verði á sínum tíma og ekki eðlilegt að slík samtök geti í nútímanum hagnast mikið við breytta notkun reitsins og sölu til einkaréttarlegra uppbyggingaraðila. Borgarfulltrúi Viðreisnar bendir á að mikilvægt er að þegar samið verði við lóðarhafa að þá sé tryggt borgin verði ekki af mögulegum tekjum eða innviðagjöldum hvað þetta hverfi varðar.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102923 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012416
Síðasta markaðsverð
19.500.000 kr.
Einbýli · 91 m² · 29.12.2023
Kaupskrá 3 eignir
19.500.000 kr. 29.12.2023
Einbýli · 91 m² · 3 herb. · bygg. 1959 · HMS
70.000.000 kr. 14.06.2022
Einbýli · 185 m² · 5 herb. · bygg. 1956 · HMS
29.000.000 kr. 31.03.2017
Einbýli · 205 m² · 4 herb. · bygg. 1974 · HMS
Deiliskipulag
Deiliskipulag fyrir Hátún 10, 12 og 14
Samþykkt 07.12.1993 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag