Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 381
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á vinnslutillögu fyrir svæðið við Köllunarklett.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna áformum um uppbyggingu lífsgæðakjarna við Köllunarklett sem gott dæmi um skynsamlega þéttingu og umbreytingu iðnaðarsvæðis í blandaðan borgarhluta. Samfylkingin leggur áherslu á að vandað verði til verka svo hverfið eldist vel næstu 100 árin. Í ljósi þess að íbúafjöldi á heimili fer ört lækkandi, lýsum við áhyggjum af 100 m² meðalstærð íbúða. Tryggja verður ríkan hlut minni og hagkvæmari íbúða fyrir ungt fólk og tryggja þarf forkaupsrétt Félagsbústaða á allt að 5% íbúða. Jafnframt bendum við á að vegna lágrar sólhæðar í Reykjavík eru skuggar langir. Mannlegur mælikvarði í anda 3–5 hæða byggðar tryggir skemmtilegri götumynd. Tryggja þarf við frekari þróun skipulags svæðisins að hærri byggingar, allt að 5-7 hæða á völdum stöðum, valdi ekki varanlegum skugga á torg og göngugötur. Í deiliskipulaginu þarf einnig að tryggja að skýrar kvaðir muni gilda um gróður og hönnun sem brýtur upp vind, svo skjól og örloftslag verði tryggt. Að lokum leggjum við áherslu á að aðstæður í nærliggjandi hverfi verði tekin inn í heildarsamhengi deiliskipulagsins, og þar sér í lagi fyrirhuguð uppbygging á lóð Listaháskólans. Ekki er síður mikilvægt að hugað verði að öruggum og greiðum tengingum frá þessu nýja hverfishluta yfir, undir eða um Sæbraut.