Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24080069 þannig að eignum er fjölgað og íbúð 0001
gerð að séreign og innra skipulagi íbúar er breytt auk þess sem stigi milli hæða er fjarlægður,
komið er fyrir nýjum glugga, útihurð á suðausturhlið er færð til og landhæð lækkuð til
samræmis, jafnframt eru brunavarnir bættar og skráningartafla uppfærð fyrir einbýlishús á lóð
nr. 57 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 29. október 2026, umsögn Minjastofnunar dags. 19.
ágúst 2026, skýringarmynd, teikning B200, útg. A, á aðkomu slökkviliðs, greinargerð
hönnuðar dags. 9. janúar 2026 og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 1. október
2024.