Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24080069 þannig að íbúð í kjallara verður séreign, innra
skipulagi íbúðar 0001 er breytt, stigi milli hæða er fjarlægður, komið er fyrir nýjum glugga, útihurð
á suðausturhlið er færð til og landhæð lækkuð til samræmis, jafnframt eru brunavarnir bættar og
skráningartafla uppfærð fyrir einbýlishús á lóð nr. 57 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 9. janúar 2026 og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum
samþykktum 1. október 2024.