Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 369
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram tillaga umhverfis- og skiplagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Korpúlfsstaða vegna lóðarinnar nr. 1 við Thorsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að reitur b er færður til vesturs í um tæpa 22 metra frá lóðarmörkum til austurs að Korpúlfsstöðum og frá göngustígnum norðan við skika 8, land nr. L213909, og að valinn er einn litur úr litatöflu og verður öll byggingin með lit RAL 7006, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdrætti Teiknistofunnar Storð, dags. 27. október 2025, br. 21. janúar 2026. Tillagan var grenndarkynnt frá 11. nóvember 2025 til og með 9. desember 2025. Athugasemdir og umsögn bárust. Einnig er lagt fram bréfi Arkís arkitekta, dags. 15. desember 2025, umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 8. janúar 2026, og fornleifaskráningu Borgarsögusafns Reykjavíkur, skýrsla nr. 241, dags. árið 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. janúar 2026.
Svar

Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.