Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 369
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram umsókn PLAN Studio ehf., dags. 20. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, Vísindagarða, vegna lóðarinnar nr. 3 við Kristínargötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að hámarkshæð byggingar á lóð er hækkuð, heimiluðum A m2 ofanjarðar og neðanjarðar er fjölgað á kostnað B m2, byggingarreitur neðanjarðar stækkar út að Torfhildargötu til samræmis við kjallara Kristínargötu 1, samkvæmt deiliskipuskipulags- og skuggavarpsuppdráttum PLAN Studio ehf., dags. 20. október 2025, br. 26. janúar 2026. Tekið er fram að rampur Grósku og bílastæði verða samnýtt milli lóða og gögn um bílastæðabókhald lögð fram til stuðnings hinu síðarnefnda. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. nóvember 2025 til og með 2. desember 2025. Athugasemdir og umsögn bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. janúar 2026.
Svar

Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.

102 Reykjavík
Landnúmer: 224868 → skrá.is
Hnitnúmer: 10118784
Deiliskipulag
Deiliskipulag Háskóla Íslands, austan Suðurgötu
Samþykkt 28.09.1999 · Deiliskipulag. Nýtt DSK