Lögð fram umsókn
Reirs verks ehf.
, dags. 22. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar, hækkun á hámarkshæð bygginga og að heimilt verði að byggja allt að 5 hæðir innan byggingarreits og hæðartakmarkana, samkv. uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 28. janúar 2026. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 5. febrúar 2024, og samgöngumat Eflu, dags. 5. febrúar 2026.