Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Reirs verks ehf.
, dags. 22. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar og hækkun á hámarkshæð byggingarinnar, samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 28. janúar 2026. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 5. febrúar 2024, og samgöngumat Eflu, dags. 5. febrúar 2026. Tillagan var auglýst frá 21. maí 2026 til og með 2. júlí 2026. Ábending barst.