Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði hafa í rúmlega tvo mánuði margítrekað óskað eftir kynningu á yfirstandandi framkvæmdum við Brákarborg við Kleppsveg. Ekki hefur enn verið orðið við þessari ósk þeirra þrátt fyrir að réttur kjörinna fulltrúa til upplýsinga sé mjög ríkur. Þá samþykkti ráðið einróma á fundi sínum 24. september sl. að það fengi kynningu á umræddum framkvæmdum og að þeim fulltrúum, sem áhuga hefðu, yrði gefinn kostur á að sjá og kynna sér framkvæmdir á verkstað. Spurt er: af hverju hefur umrædd kynning ekki enn farið fram þrátt fyrir margítrekaðar óskir fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og einróma samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þar að lútandi? Er ætlunin að tefja vísvitandi umrædda kynningu og þar með framlagningu upplýsinga um yfirstandandi framkvæmdir við Brákarborg, þar til þær verða yfirstaðnar?