Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fulltrúi Framsóknar hefur fengið kvartanir um vöntun á ruslatunnum í borgarlandinu. Því er óskað eftir yfirliti yfir staðsetningu ruslatunna í borgarlandi. Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvaða forsendur eru hafðar að leiðarljósi við val á staðsetningu þeirra.