Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um skýrsluna ,,Capacity Analysis of Höfðabakki", sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 1. október 2025. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 15. október 2025.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Mikilvægt er að upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa sé vönduð, enda bera þeir ábyrgð á pólitískum ákvörðunum. Í lögum og ýmsum samþykktum er kveðið á um að kynna þurfi mál nægilega til að kjörnir fulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til þeirra. Við undirbúning þrengingar gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls var verkfræðistofan Cowi fengin til að greina áhrif af mismunandi útfærslum væntanlegra breytinga. Cowi skilaði skýrslu um málið í desember 2024 og þar kom skýrlega fram að lokun beygjuakreina myndi lengja bílaraðir og valda stórauknum umferðartöfum á gatnamótunum. Ekki verður um það deilt að mikilvægar upplýsingar um hugsanlegar breytingar á gatnamótunum voru í skýrslunni, þótt þar væri ekki fjallað nákvæmlega um þá útfærslu, sem varð á endanum fyrir valinu. Augljóst er að umrædd greining Cowi var lykilgagn þegar að því kom að meta afleiðingar hugsanlegra breytinga þar. Þrátt fyrir það var greiningin ekki kynnt fyrir kjörnum fulltrúum í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur þegar ákvörðun var tekin um þrenginguna 26. mars 2025. Í þessu máli voru kjörnir fulltrúar ekki upplýstir um lykilgögn, þriggja mánaða gamla verkfræðilega greiningu á áhrifum mismunandi breytinga á umræddum gatnamótum þegar ákvörðun var tekin. Slík stjórnsýsla er óviðunandi.