Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir skýringum á því af hverju skýrslan ,,Capacity Analysis of Höfðabakki” var ekki kynnt fulltrúum í umhverfis- og skipulagsráði áður en ákvörðun var tekin um þrengingu gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls, 26. mars 2025. Skýrslunni var skilað í desember 2024 og ljóst er að hún er lykilgagn varðandi mat á líklegum áhrifum breytinga á umræddum gatnamótum. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hverjir eru höfundar skýrslunnar og hver kostnaður Reykjavíkurborgar var vegna hennar. Þá er spurt um hvort það sé í samræmi við málstefnu Reykjavíkurborgar að hafa skýrsluna einungis á ensku.