Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1060
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2025 var lögð fram umsókn Arkiteo ehf. , dags. 21. september 2025, um breytingu á deiliskipulagi Heiðargerðisreits vegna lóðarinnar nr. 92 við Heiðargerði. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að stækka byggingarreit lóðarinnar til að koma fyrir nýju anddyri, hækka þak í norðurhluta hússins og setja kvist á eldra þak í norðurhluta hússins, ásamt því að setja nýja þakglugga á húsið, glugga á norðurhlið hússins, nýja glugga í kvisti á austurhlið og nýjar svalir á vesturhlið út frá eldri kvisti, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Arkiteo ehf. , dags. 24. apríl 2026. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Heiðargerði 74, 76, 90 og 94.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7.6 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107680 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011758
Síðasta markaðsverð
126.000.000 kr.
Einbýli · 188 m² · 27.06.2025
Kaupskrá 1 eign
126.000.000 kr. 27.06.2025
Einbýli · 188 m² · 6 herb. · bygg. 1956 · HMS
Deiliskipulag
Heiðargerðisreitur
Samþykkt 19.06.2003 · Deiliskipulag. Nýtt DSK