Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1060
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, mótt. 23. mars 2026, þar sem óskað er eftir umsögn um matsskyldufyrirspurn VSÓ ráðgjafar, dags. í febrúar 2026, vegna uppbyggingu þauleldis alifugla í Saltvík. Tvö varphús eru þegar risin á jörðinni. Hið fyrra var reist 2023 og hið seinna 2024. Húsin eru um 1.700 m2 og rúma um 24.000 – 26.000 varpstæði. Til stendur að reisa eitt varphús til viðbótar, sem verður um 1.700 m2 með stæði fyrir um 10.000 varphænur og auka aðstöðu fyrir starfsemina. Með viðbótinni verður heildarstærð búsins um 5.100 m2 með stæði fyrir um 59.900 varphænur. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026, samþykkt.

162 Reykjavík
Landnúmer: 125744 → skrá.is
Hnitnúmer: 10036136
Deiliskipulag
Saltvík á Kjalarnesi
Samþykkt 06.10.1998 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag