Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 359
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á Ljósvistarstefnu Reykjavíkurborgar, Aðgerðaáætlun 2025–2030. - Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Unnið hefur verið að fyrirliggjandi ljósvistarstefnu í tólf ár með mikilli fyrirhöfn og ærnum tilkostnaði. Frá því að stefnan var kynnt í núverandi mynd árið 2022 hefur götulýsingu hrakað verulega í Reykjavík vegna þrálátra bilana og ónógs viðhalds. Mörg dæmi eru um að ljósastaurar hafi verið óvirkir mánuðum og jafnvel árum saman, sem veldur óþægindum og hættu. Ástandið er ekki skárra í nýjum hverfum eins og Vogabyggð er dæmi um. Vegna þessarar öfugþróunar í ljósvistarmálum Reykjavíkurborgar undanfarin ár, vaknar sú spurning hvort tilgangur stefnumótunarinnar hafi verið sá að gefa meirihluta borgarstjórnar tækifæri til að láta ljós sitt skína, fremur en að knýja fram raunverulegar úrbætur í málaflokknum. Brýnasta verkefnið í ljósvistarmálum Reykjavíkurborgar er að bæta peruskipti og viðhald götulampa í öllum hverfum borgarinnar. Í ljósi mikilvægis málsins er æskilegt að fjallað verði sérstaklega um þennan þátt í ljósvistarstefnunni og sett fram markmið um peruskipti og annað viðhald. Það ætti að vera óþekkt að borgarfulltrúar þurfi að flytja sérstakar tillögur um peruskipti eða einfalt viðhald á einstökum ljósastaurum, sem hafa verið óvirkir mánuðum og jafnvel árum saman, en svo er því miður ekki.