Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 395
Annað
Fyrirspurn
Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. október 2026, liður 2 um Lágmúla 2 - Nýtt deiliskipulag - Skipulagslýsing. Rétt bókun er: Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, lóðarhöfum aðliggjandi lóða vegna þeirrar nauðsynlegu aðlögunar sem gera þarf á landhæðum á lóðamörkum og tengingum við göngu- og hjólastíga, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna áformum um að breyta vannýttu bílastæði við Lágmúla í fallega, blandaða byggð í nálægð við atvinnu, þjónustu og fyrirhugaða Borgarlínu. Verkefnið á rætur í alþjóðlegri loftslagssamkeppni C40 þar sem lögð var áhersla á kolefnishlutleysi, félagslega blöndun og gæði borgarumhverfis. Mikilvægt er að þau markmið endurspeglist í endanlegu skipulagi, meðal annars með fjölbreyttum búsetukostum, grænum svæðum og öruggum göngu- og hjólatengingum.