Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 380
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn SB18 ehf., dags. 13. ágúst 2025, um breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar - Ármúla vegna lóðar nr. 18 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að hækka fyrirhugað, óbyggt bakhús um eina hæð. Í dag er tveggja hæða bílastæðahús þar sem þegar skipulagt bakhús verður. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi, sem tók gildi árið 2017, er einungis heimiluð ein hæð bílastæða undir bakhúsinu. Hækkunin felst í því að halda þessum tveimur bílastæðahæðum, sem nú eru til staðar, og byggja 4 hæðir ofan á bílastæðahúsið. Þannig er ekki verið að auka við byggingarmagn nýtanlegra fermetra heldur einungis verið að halda í þau bílastæði sem eru á lóðinni í dag. Starfsemi í húsinu verður í takt við heimildir í deiliskipulagi, sem getur þá verið hótel, skrifstofur og þjónusta á jarðhæð, samkvæmt uppdr. ASK arkitekta, dags. 1. júní 2026. Einnig er lagt fram minnisblað ASK Arkitekta um samgöngumat, dags. 15. júní 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.

Síðasta markaðsverð
1.470.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 3442 m² · 18.04.2024
Kaupskrá 1 eign
1.470.000.000 kr. 18.04.2024
Atvinnuhúsnæði · 3442 m² · bygg. 1973 · HMS
Deiliskipulag
Suðurlandsbraut 18-28 og Ármúli 15-27
Samþykkt 21.08.2001 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag
Greinargerð
Greinargerð forsíða