Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 1 viku síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1066
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn SB18 ehf., dags. 13. ágúst 2025, um breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar - Ármúla vegna lóðar nr. 18 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að hækka fyrirhugað óbyggt bakhús um eina hæð. Í dag er tveggja hæða bílastæðahús þar sem þegar skipulagt bakhús verður. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi, sem tók gildi árið 2017, er einungis heimiluð ein hæð bílastæða undir bakhúsinu. Hækkunin felst í því að halda þessum tveimur bílastæðahæðum, sem nú eru til staðar, og byggja 4 hæðir ofan á bílastæðahúsið. Þannig er ekki verið að auka við byggingarmagn nýtanlegra fermetra heldur einungis verið að halda í þau bílastæði sem eru á lóðinni í dag. Starfsemi í húsinu verður í takt við heimildir í deiliskipulagi, sem getur þá verið hótel, skrifstofur og þjónusta á jarðhæð, samkvæmt uppdr. ASK arkitekta, dags. 1. júní 2026. Einnig er lagt fram minnisblað ASK arkitekta um samgöngumat, dags. 15. júní 2026.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Komi til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi að greiða skv. gr. 7.5 og 7.7 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1376/2025.

Síðasta markaðsverð
1.470.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 3442 m² · 18.04.2024
Kaupskrá 1 eign
1.470.000.000 kr. 18.04.2024
Atvinnuhúsnæði · 3442 m² · bygg. 1973 · HMS
Deiliskipulag
Suðurlandsbraut 18-28 og Ármúli 15-27
Samþykkt 21.08.2001 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag
Greinargerð
Greinargerð forsíða