Vesturhöfn (Örfirisey) - Breyting á deiliskipulagi - Hólmaslóð 2 / Eyjarslóð
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1019
17. júlí, 2025
Samþykkt
‹ 41
42
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. júní 2025 var lögð fram umsókn Laka fasteigna ehf., dags. 20. júní 2025, ásamt bréfi Sen og Son, dags. 20. júní 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðanna nr. 2 við Hólmaslóð og 1 við Eyjaslóð. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að færa byggingarheimildir 3. hæðar á milli lóðanna tveggja, hækka hámarkshæð úr 12 m í 14 m, byggja megi 3. hæð út í byggingarlínu núverandi bygginga að hluta og að skyggni á byggingarhluta 3. hæðar fari út í byggingarlínu núverandi húss á sólarhliðum, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. Sen og Son, dags. 20. júní 2025. Einnig er lagt fram skuggavarp Sen og Son, dags. 20. júní 2025. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Grandagarði 20, Eyjarslóð 1 og 3, Hólmaslóð 4 /Fiskislóð 34-38.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024.
Einnig er vakin athygli á að sérstakur réttur eiganda til byggingar ofan á eða við hús eða á lóð þess verður að byggjast á þinglýstum heimildum. Að öðrum kosti er slíkur byggingarréttur í sameign allra eigenda hússins. Ef ekki leiðir annað af þinglýstum heimildum er slík bygging því háð samþykki allra eigenda nema gert hafi verið ráð fyrir henni í upphafi á samþykktri teikningu., sbr. 28. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994.
Svar