Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Bjarna Reykjalín, dags. 21. maí 2025, ásamt bréfi, dags. 21. maí 2025, um breytingu a deiliskipulagi Einarsness vegna lóðarinnar nr. 3A við Bauganes. Í breytingunni sem lögð er til felst að felldur er niður byggingarreitur til norð-austurs og í staðinn kemur nýr byggingarreitur fyrir flóttastiga af nýjum svölum ofan á þaki núverandi geymslu. Byggingarreitur til suð-vesturs er lengdur um 3 m og verður 9 m í stað 6 m og breikkaður um 0,5 m eða úr 6,0 m í 6,5 m. Minni háttar útbyggingar svo sem þakskegg, og svalir allt að 1,5 m, mega ná út fyrir byggingarreit. Auk þess verði heimilað að stækka íbúðarhús með 2. hæða viðbyggingum til suð-vesturs, samkvæmt uppdr. BR teiknistofu slf., dags. 21. maí 2025. Einnig er lagt fram skuggavarp, dags. 13. maí 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. júní til og með 11. júlí 2025. Athugasemdir bárust. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.