Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Rafkletts ehf.
, dags. 11. júní 2025, um breytingu á deiliskipulagi Rafstöðvarsvæðis vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Rafstöðvarveg vegna byggingu nýs 7 deilda leikskóla. Í breytingunni sem lögð er til felst annars vegar stækkun og tilfærsla á byggingarreit B1 ásamt breytingu á kvöðum þeirrar lóðar, skilmálum og auknu byggingarmagni. Hins vegar er stofnuð ný lóð við Rafstöðvarveg 5 þar sem verður leiksvæði leikskólans, samkvæmt uppdrætti HJARK, dags. 3. september 2025. Einnig er lögð fram afstöðumynd HJARK, dags. 3. september 2025, skuggavarp HJARK og sastudio, ódags. og samgöngumat Eflu, dags. 28. ágúst 2025. Tillagan var auglýst frá 25. september 2025 til og með 6. nóvember 2025. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.