Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 352
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Rafkletts ehf. , dags. 11. júní 2025, um breytingu á deiliskipulagi Rafstöðvarsvæðis vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Rafstöðvarveg. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun og tilfærsla á byggingarreit B1, aukning á byggingarmagni, heimilt verði að byggja tvær hæðir í stað einnar hæðar og millipalls og að kvöð um flatt þak verði felld niður, samkvæmt uppdrætti HJARK, dags. 3. september 2025. Einnig er lögð fram afstöðumynd HJARK, dags. 3. september 2025, skuggavarp HJARK og sastudio, ódags. og samgöngumat Eflu, dags. 28. ágúst 2025.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.