Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 347
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna: Lagt er til að unnið sé verklag í samvinnu skrifstofu framkvæmda og viðhalds og samgangna og borgarhönnunar þar sem tryggt er að við nýtum ferðina í viðhaldsframkvæmdum til að mæta stefnu Reykjavíkurborgar í aðalskipulaginu um m.a. öryggi og aðgengi vistvænna ferðamáta og fatlaðs fólks. Ætíð séu skoðuð tækifæri til að gera þarfar úrbætur eftir því sem við á og tækifæri eru til svo sem að breikka gangstéttar og lækka kanta, innleiða hraðalækkandi aðgerðir, hækka gönguþveranir, nýta blágrænar ofanvatnslausnir, útfæra leiðarlínur, bæta lýsingu, auka gróður, útfæra hjólastíga og draga úr hraða. Starfshópur sé settur á laggirnar um vinnuna.
Svar

Samþykkt.