Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 347
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokki fólksins og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að Austurstræti og Veltusund verði varanlegar göngugötur. Umhverfis- og skipulagssviði, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, verði falið að útfæra merkingar og einfaldar aðgerðir til að gera göturnar að göngugötum þrátt fyrir að ekki sé unnt að fara í endurgerð gatnanna á þessum tímapunkt, t.d. með gróðri og götugögnum. Einnig að að leita samþykkis lögreglu fyrir ráðstöfuninni og auglýsa í Stjórnartíðindum í samræmi við 84. gr. umferðarlaga 77/2019. Tillagan taki gildi þegar merkingar í samræmi við reglugerð 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra um hafa verið settar upp. Lögð fram svohljóðandi málsmeðferðartillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að fyrirliggjandi tillaga um lokun vesturhluta Austurstrætis og Veltusunds fyrir almennri bílaumferð verði kynnt fyrir íbúum og rekstraraðilum í viðkomandi götum, sem og Íbúasamtökum Miðborgar Reykjavíkur, Íbúasamtökum Grjótaþorps, Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ), Miðbæjarfélaginu og Miðborginni okkar. Verði þessum aðilum gefinn kostur á að skila athugasemdum um málið áður en tillagan hlýtur afgreiðslu. Málsmeðferðartillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði með breytingartillögunni. Upprunaleg tillaga er lögð fram óbreytt til afgreiðslu. Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna:
Þann 10. janúar 2024 var samþykkt heimild til verkhönnunar og breytingar á Austurstræti sem göngusvæðis, sbr. lið 11 fundargerðar. Umferðarskipulag Kvosarinnar var samþykkt á árinu 2020 og er hér verið að taka næstu skref þess umferðarskipulags en stór hluti Austurstrætis hefur árum saman verið göngusvæði. Mikill meirihluti borgarbúa er hlynntur göngugötum og hefur stuðningurinn aukist um leið og þeim hefur fækkað sem eru óánægð. Könnun hefur sýnt að þeim fjölgar sem telja að göngugötusvæðin megi vera stærri. Við tökum þvi sem hvatningu til að stækka göngusvæðin og munum nú koma á samfelldu göngusvæði í Kvosinni frá Lækjartorgi að Ingólfstorgi.