Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna:
Tillögunni er vísað frá þar sem samhljóða tillaga hefur þegar verið afgreidd á vettvangi borgarstjórnar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksons og áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Við hörmum að fulltrúar meirihluta umhverfis- og skipulagsráðs skuli hafna tillögu Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar um að stofna stýrihóp um mótun framtíðarsýnar fyrir Heiðmörk. Það er afar mikilvægt að tryggja aðkomu kjörinna fulltrúa að ákvörðunum sem snerta svo mikilvæga hagsmuni almennings. Bæði hvað varðar vatnsvernd og lýðheilsu enda eru um 500 þúsund heimsóknir í Heiðmörk á ári. Stýrihópurinn gæti leitt lýðræðislegt samtal við hagaðila og almenning, látið vinna áhættugreiningu, lýðheilsumat og sviðsmyndir um fjárfestingu í vatnsöflun á nýjum svæðum til þess að koma í veg fyrir takmarkað aðgengi að Heiðmörk, nýjar aðgangsstýringar eða lausnir sem tryggja bæði sjónarmið vatnsverndar og útivistar. Afstaða meirihlutans um að hafna stofnun stýrihópsins verður að teljast mjög einkennilega. Kjörnir fulltrúar hafa hér óskað eftir aukinni aðkomu að framtíðarskipulagi einnar helstu útivistarperlu höfuðborgarsvæðisins.