Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 344
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á tillögu Teiknistofunnar Traðar f.h. Háaleitisbrautar ehf. um breytingu á deiliskipulagi Safamýrar - Álftamýrar vegna lóðarinnar nr. 12 við Háaleitisbraut. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun lóðarinnar og uppbygging tveggja fjölbýlishúsa á lóð, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum Teiknistofunnar Traðar, dags. 22. maí 2025. Einnig er lagt fram samgöngumat Teiknistofunnar Traðar, dags. 22. maí 2025 og hljóðvistarskýrsla Lotu, dags. 22. maí 2025. Málið er trúnaðarmál fram yfir afgreiðslu málsins. Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins er færð í trúnaðarbók Bókun fulltrúa Framsóknarflokksins er færð í trúnaðarbók Bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar er færð í trúnaðarbók