Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 349
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á tillögu Teiknistofunnar Traðar f.h. Háaleitisbrautar ehf. um breytingu á deiliskipulagi Safamýris - Álftamýris vegna lóðarinnar nr. 12 við Háaleitisbraut. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Háaleitisbraut 12 er spennandi uppbyggingarreitur þar sem stefnt er að því að núverandi bensínstöð víki fyrir nýjum íbúðum og þjónustustarfsemi á jarðhæð. Reiturinn er aðþrengdur á allar hliðar og því krefjandi verkefni að koma fyrir byggð á reitnum sem fellur vel að nærumhverfinu. Fyrirliggjandi tillögur gera ráð fyrir björtum og sólríkum íbúðum um leið og ný byggð mætir Álftamýrinni til suðurs vel með litlu torgi og grænum jaðri næst götunni. Eftir stendur þó að móta nýja byggð þannig að hún mæti Háaleitisbraut betur, til vesturs og norðurs. Nauðsynlegt er að skoða þar atriði áfram eins og til dæmis aðkomu í bílakjallara, sjónás niður Álftamýri, blöndun þjónustu og íbúða á jarðhæð og ásýnd jarðhæðar reitsins að Háaleitisbraut.