Arnarbakki 2
Arnarbakki 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1219
19. ágúst, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja tvö 3.-4. hæða fjölbýlishús, mhl. 01 og mhl. 02, með 70 námsmannaíbúðum á 2.-4. hæð, sameiginleg rými fyrir íbúa á 1. hæð mhl. 01, fimm deilda leikskóli á 1. hæð mhl. 02 ásamt hjóla- og sorpskýlum, mhl. 03 og mhl. 04 á lóð nr. 2 við Arnarbakka. Stærð, mhl. 01: 3.152 ferm., 9.718,6 rúmm. Mhl. 02: 4.237 ferm., 14.406,7 rúmm. Mhl. 04 , B-rými: 50,3 ferm. Erindi fylgir orkurammi, greinargerð um hljóðvist frá Myrru dags. 18. júní 2025 og brunahönnun frá Lotu síðast uppfærð dags. 31. júlí 2025.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði
þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

109 Reykjavík
Landnúmer: 111858 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006746