Austurbrún 6
Austurbrún 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1219
19. ágúst, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir 5-gáma djúpgámasetti sem þjóna á alls 77 íbúðum í fjölbýlishúsunum við Austurbrún 6, mhl.01, og 6A, mhl.02. sem staðsettir verða norðan við inngang að mhl.01 á lóð nr. 6 við Austurbrún. Erindi fylgir ódagsett greinargerð kynning Noland um djúpgáma, áætlaðan fjölda, aðgengi og losun.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að gera nýjan viðauka við þinglýsta eignaskiptayfirlýsingu sem útskýrir skiptingu og
viðhaldskostnað vegna djúpgáma.
Fyrir útgáfu byggingarleyfis þarf að berast staðfesting frá eignaskiptayfirlýsanda, á tölvupóstfang
eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is, um að vinna á viðauka er hafinn. Eignaskiptayfirlýsingu þarf
að þinglýsa fyrir lokaúttekt.