Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að Reykjavíkurborg beiti sér fyrir því að samstarfsaðilar í samgöngusáttmálanum endurmeti framkvæmdir við Fossvogsbrú og meti hvort fallið verði frá þeim eða hvort unnt sé að finna hagkvæmari lausn á tengingu almenningssamgangna milli Reykjavíkur og Kársness. Það verði gert með hliðsjón af því að kostnaðurinn hefur rokið upp úr 2,25 milljörðum í 8,8 milljarða króna, nærri fjórföldun, eða 291% aukning frá upphaflegri áætlun, sem vekur spurningar um áætlanagerð og fjármálastjórn verkefnisins. Greinargerð fylgir tillögunni.