Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir greinargerð um fyrirhugað fyrirkomulag akreina á þeim götum og götuköflum sem fyrsti áfangi borgarlínu mun liggja um, frá Ártúni að Fossvogsbrú. Á hvaða köflum viðkomandi gatna má gera ráð fyrir að verði eingöngu sérakreinar fyrir borgarlínu, hvar verði áfram akreinar fyrir almenna umferð og hvar verði um blandaðan akstur borgarlínu og almennrar bílaumferðar að ræða? Óskað er eftir sundurliðun vegna hverrar götu fyrir sig.