Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði fagna fyrirliggjandi uppfærslu á samþykkt um skilti í Reykjavík þar sem kveðið er á um einfaldara og skýrara regluverk, rýmri heimildir og skýrari tæknikröfur. Mikilvægt er að skýrt og aðgengilegt sé hvaða reglur gilda um uppsetningu skilta, hvort sem er í borgarlandi eða á einkalóðum, þannig að íbúar, rekstraraðilar og hönnuðir viti fyrirfram hvaða heimildir eru til staðar og hvenær þörf er á leyfisveitingu. Með einfaldara regluverki og skýrari viðmiðum er stuðlað að auknum fyrirsjáanleika, samræmdri málsmeðferð og skilvirkari þjónustu borgarinnar. Jafnframt er mikilvægt að svigrúm sé til fjölbreyttra og skapandi lausna sem styðja við atvinnustarfsemi og lifandi borgarumhverfi, samhliða því að gætt sé að ásýnd borgarinnar, öryggi vegfarenda og hagsmunum íbúa. Uppfærslan er liður í áherslum meirihlutans á einföldun regluverks, bætta þjónustu og aukinn fyrirsjáanleika í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.