Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 397
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á stöðu vetrarþjónustu í Reykjavík.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakka fyrir kynningu á vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar. Þeir þakka jafnframt starfsfólki borgarinnar og verktökum fyrir störf þeirra við snjómokstur og hálkuvarnir, oft við erfiðar aðstæður. Auk gatna þarf að sinna 506 km af stígum í efstu þjónustuflokkum. Þar af eru 90 km hjólastígar, 240 km stofnstígar og 176 km aðrir fjölfarnir stígar. Áætlaður kostnaður við vetrarþjónustuna á árinu 2026 er 1.258 milljónir króna. Samkvæmt kynningunni kostar hefðbundið útkall um 8,4 milljónir króna á dag en útkall við 10–20 cm snjókomu um 26 milljónir króna. Vetrarþjónusta krefst árvekni. Færð getur breyst hratt og aðstæður verið ólíkar eftir hverfum. Því skiptir máli að fylgjast vel með hálkumyndun og bregðast tímanlega við svo börn komist örugg í skólann, strætóleiðir haldist greiðfærar og aðgengi að sjúkrahúsum sé tryggt. Við snjómokstur þarf sérstaklega að gæta þess að snjóruðningar loki ekki göngu- og hjólaleiðum þar sem þær þvera götur. Meirihlutinn fagnar samstarfinu um vetrarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og telur mikilvægt að samræma viðvaranir til vegfarenda. Hitamyndavélar og frostmælar gætu gefið starfsfólki betri mynd af aðstæðum í einstökum hverfum. Þá er vert að kanna hvernig nýta megi gervigreind til að spá fyrir um hálku og meta hvenær og hvar þörf er á útkalli.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Verklag við vetrarþjónustu í Reykjavík er skýrt og í meginatriðum gott en það sem skiptir borgarbúa mestu máli er hvernig þjónustan skilar sér í framkvæmd. Fólk þarf að komast til vinnu, í skóla og sækja daglega þjónustu með öruggum hætti, hvort sem það gengur, hjólar, gengur, tekur strætó eða ekur bíl. Sérstaklega þarf að gæta þess að göngu- og hjólaleiðir verði ekki útundan þegar aðstæður eru erfiðar. Mikilvægt er að leggja reglulega mat á hvort tækjabúnaður, viðbragðsgeta og forgangsröðun mæti þörfum borgarbúa. Þá þarf að meta reynsluna af aukinni útvistun með tilliti til kostnaðar, þjónustugæða og viðbragðsgetu.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokksins:
Með aukinni útvistun er meiri hætta á að gæði þjónustunnar minnki.