Síðast Samþykkt á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 379
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis, áfanga 1-6, vegna nýrra lóða við Hverafold. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreindar eru tvær nýjar lóðir á svæðinu fyrir fjölbýlishús, auk þess að skilgreindir eru sérstakir lóðarskikar fyrir bílastæði, samkvæmt uppdr. Trípólí Arkitekta, dags. 21. apríl 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat Eflu, dags. 18. mars 2026.
Svar

Samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og Viðreisnar að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins greiðir atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst eindregið gegn fyrirliggjandi þéttingaráformum við Hverafold. Enn á ný ætlar meirihlutinn að þrengja að grónu hverfi Grafarvogs þrátt fyrir skýra andstöðu íbúa. Met var sett í athugasemdum við mál í Skipulagsgátt fyrir ári þegar 1.386 athugasemdir bárust við þéttingaráform meirihlutans í borginni, nánast allar neikvæðar. Þessi tillaga gerir ráð fyrir allt að 36 íbúðum á svæði þar sem 73 bílastæði við Foldatorg hverfa. Þá er gert ráð fyrir að 140 bílferðir bætist við daglega. Tillagan er óraunhæf, mun mæta mikilli andstöðu og verður átakamál í nærumhverfinu. Óskiljanlegt er að núverandi meirihluti ætli enn og aftur í átök við íbúa Grafarvogs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn situr hjá við afgreiðslu málsins. Þar sem kosningar eru í nánd þá telur fulltrúi Framsóknar eðlilegt að bíða með áframhaldandi vinnu með deiliskipulag í Grafarvogi þar til þeim er lokið, sérstaklega í ljósi þess hversu umdeildar þær þykja.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Miðflokkurinn leggst alfarið gegn öllum þéttingaráformum í grónum hverfum Grafarvogs og leggur til að fallið verði tafarlaust frá slíkum áformum enda eru þéttingaráformin í mikilli andstöðu við íbúa eins og margoft hefur komið fram á íbúafundum. Nú á að herja á útivistar- og opin svæði í Grafarvoginum. Grænu svæðin hafa ekki farið varhluta af ofþéttingarstefnu meirihlutans og nú á að nýta hvern einasta græna blett í grónum hverfum Grafarvogs til uppbyggingar. Lítið er að marka meirihluta sem kennir sig við umhverfisvernd en ætlar á sama tíma að halda sig við að nýta hvern einasta græna blett og opin svæði í Grafarvoginum til uppbyggingar sem kemur niður á lífsgæðum íbúa. Í aðalskipulaginu er lögð áhersla á gæði byggðar sem samræmist engan veginn þeirri stefnu að þétta byggð á kostnað þeirra örfáu grænu svæða sem eftir eru í borgarlandinu.