Samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og Viðreisnar að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins greiðir atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirliggjandi tillögu um þéttingu byggðar við Starengi. Íbúar í Grafarvogi hafa ítrekað lýst yfir skýrri andstöðu við áform um þéttingu innan hverfisins og eru margir orðnir brenndir af vinnubrögðum tveggja síðustu meirihluta. Íbúar Grafarvogs hafa jafnframt ítrekað lýst áhyggjum af því að leiðir inn og út úr hverfinu séu sprungnar og á meðan ekki hefur verið fundin lausn á því máli er tómt mál að tala um að fjölga íbúum í hverfinu. Mikilvægt er að virða vilja nærumhverfisins og horfa fremur til uppbyggingar á nýjum svæðum þar sem hægt er að byggja upp húsnæði með betri heildarsýn, sterkari innviðum og minni neikvæðum áhrifum á gróin hverfi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn situr hjá við afgreiðslu málsins. Þar sem kosningar eru í nánd þá telur fulltrúi Framsóknar eðlilegt að bíða með áframhaldandi vinnu með deiliskipulag í Grafarvogi þar til þeim er lokið, sérstaklega í ljósi þess hversu umdeildar þær þykja.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Miðflokkurinn leggst alfarið gegn öllum þéttingaráformum í grónum hverfum Grafarvogs og leggur til að fallið verði tafarlaust frá slíkum áformum enda eru þéttingaráformin í mikilli andstöðu við íbúa eins og margoft hefur komið fram á íbúafundum. Nú á að herja á útivistar- og opin svæði í Grafarvoginum. Grænu svæðin hafa ekki farið varhluta af ofþéttingarstefnu meirihlutans og nú á að nýta hvern einasta græna blett í grónum hverfum Grafarvogs til uppbyggingar. Lítið er að marka meirihluta sem kennir sig við umhverfisvernd en ætlar á sama tíma að halda sig við að nýta hvern einasta græna blett og opin svæði í Grafarvoginum til uppbyggingar sem kemur niður á lífsgæðum íbúa. Í aðalskipulaginu er lögð áhersla á gæði byggðar sem samræmist engan veginn þeirri stefnu að þétta byggð á kostnað þeirra örfáu grænu svæða sem eftir eru í borgarlandinu.