Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. júní 2025 var lögð fram umsókn
Félagsbústaða hf.
, dags. 8. apríl 2025, ásamt greinagerð Noland arkitekta, ódags., um breytingu á deiliskipulagi Skúlagarðsreits eystri vegna lóðarinnar nr. 20-36 við Bríetartún. Í breytingunni sem lögð er til felst að koma fyrir byggingarreit á lóð fyrir djúpgáma, samkvæmt uppdr. Noland arkitekta, dags. 7. apríl 2025. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Laugavegi 147, 147A 149, 151-155, 157, 159, 159A, 161 og 163.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024.