Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Félagsbústaða hf.
, dags. 8. apríl 2025, ásamt greinagerð Noland arkitekta, ódags., um breytingu á deiliskipulagi Skúlagarðsreits eystri vegna lóðarinnar nr. 20-36 við Bríetartún. Í breytingunni sem lögð er til felst að koma fyrir byggingarreit á lóð fyrir djúpgáma, samkvæmt uppdr. Noland arkitekta, dags. 7. apríl 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 10. júlí 2025 til og með 7. ágúst 2025. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.