Lögð fram umsókn Ívars Haukssonar, dags. 18. mars 2025 um breytingu á deiliskipulagi Sundanna, reita 1.3 og 1.4, vegna lóðar nr. 102 við Kleppsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að stækka byggingarreit lóðar (byggingarreitur A) og færa staðsetningu bílskúrs (byggingarreit B), samkvæmt uppdr.
Verkfræðistofu Ívars Haukssonar ehf.
, dags. 14. mars 2025.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.