Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. apríl 2025 var lögð fram umsókn Ívars Haukssonar, dags. 18. mars 2025 um breytingu á deiliskipulagi Sundanna, reita 1.3 og 1.4, vegna lóðar nr. 102 við Kleppsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að stækka byggingarreit lóðar (byggingarreitur A) og færa staðsetningu bílskúrs (byggingarreit B), samkvæmt uppdr.
Verkfræðistofu Ívars Haukssonar ehf.
, dags. 14. mars 2025. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Langholtsvegi 1 og 2, Kleppsvegi 104 og Efstasundi 2.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7. 6. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024.