Lögð fram umsókn
Reita fasteignafélags hf.
, dags. 14. mars 2025, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Efstalands 26-28, vegna lóðarinnar nr. 26 við Efstaland. Í breytingunni sem lögð er til felst að bætt er við texta skilmála, ákvæði sem skilgreinir leyfilega starfsemi á vegum velferðarsviðs og/eða frjálsra félagasamtaka sem sinna velferðarþjónustu í samstarfi við Reykjavíkurborg eða ríkið á efstu hæð hússins (2. hæð frá Bústaðavegi), samkvæmt tillögu Noland, dags. 13. mars 2025. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.