Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Reita fasteignafélags hf.
, dags. 14. mars 2025, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Efstalands 26-28, vegna lóðarinnar nr. 26 við Efstaland. Í breytingunni sem lögð er til felst að bætt er við texta skilmála, ákvæði sem skilgreinir leyfilega starfsemi á vegum velferðarsviðs og/eða frjálsra félagasamtaka sem sinna velferðarþjónustu í samstarfi við Reykjavíkurborg eða ríkið á efstu hæð hússins (2. hæð frá Bústaðavegi), samkvæmt tillögu Noland, dags. 13. mars 2025. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2025 til og með 1. júlí 2025. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram ábending Veitna, dags. 2. júní 2025.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.