Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 336
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um skiptistöðina í Mjódd, sbr. 35. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 12. mars 2025. Lagt er til að vísa tillögu inn í vinnu við úrbætur á biðstöðinni í Mjódd, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 12. mars 2025.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Allt frá árinu 2016 hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins barist fyrir úrbótum á skiptistöðinni í Mjódd í því skyni að bæta aðstöðu strætisvagnafarþega. Þær tillögur hafa ýmist verið felldar eða svæfðar af hinum ýmsu vinstri meirihlutum í borgarstjórn. Óþarfi er að vísa fyrirliggjandi tillögu um Mjódd til enn einnar skoðunar í rangölum borgarkerfisins enda hefur lengi legið fyrir hvað gera þurfi í málefnum skiptistöðvarinnar. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir því að nú verði verkin látin tala í stað áralangs skeytingarleysis. 1. Kvöldopnun. Biðsalurinn verði opinn farþegum á kvöldin á meðan strætisvagnar ganga. 2. Auka þarf gæslu í biðsal, lagfæra salerni og koma salernisþrifum í lag. 3. Bæta þarf og lagfæra húsgögn í biðsal og gera salinn hlýlegri, t.d. með uppsetningu listaverka. 4. Ráðast verður í viðhald og lagfæringar á brautum, köntum og gangstéttum á skiptistöðinni með sérstakri áherslu á þá staði þar sem farþegar stíga í eða úr strætisvögnum.