Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 336
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa í ungmennaráði Grafarvogs um að frítt verði í strætó fyrir 18 ára og yngri á höfuðborgarsvæðinu, sbr. 5. liður fundargerðar borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna, dags. 28. janúar 2025.
Svar

Samþykkt að vísa tillögunni til umsagnar Strætó bs. Umhverfis- og skipulagsráð óskar sérstaklega eftir að í umsögninni verði upplýst hvaða tekjur Strætó fær í dag af aldurshópnum 12-17 ára, hver var reynslan af því þegar ókeypis var fyrir námsmenn í strætó frá 2006 – 2010 og hver eru rökin að baki því að gjaldskylda hefst við 12 ára aldur.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn styður hugmynd ungmennaráðs Grafarvogs um frítt í strætó fyrir 18 ára og yngri. Sögulega hafa almennings samgöngur ekki verið vel nýttar á höfuðborgarsvæðinu og því er nauðsynlegt að ala upp næstu kynslóð í að nýta betur strætó, sérstaklega til að tryggja að 300+ milljarða fjárfesting í borgarlínu skili árangri.