Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Skurnar ehf.
, dags. 11. mars 2025, ásamt bréfi TAG teiknistofu, dags. 11. mars 2025, um breytingu á deiliskipulagi Kjalarness, Saltvíkur vegna reits C. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjölga fjölda verpandi fugla á reit C, til samræmis við hækkað nýtingarhlutfall sem var samþykkt árið 2024, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf., dags. 11. mars 2025. Einnig lögð fram skýrsla Minjastofunnar Íslands frá árinu 2023 um skráningu fornminja innan marka fjögurra byggingareita í landi Saltvíkur á Kjalarnesi og tölvupóstur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 3. apríl 2025. Erindið var grenndarkynnt frá 14. júlí 2025 til og með 12. ágúst 2025. Umsögn barst.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.