Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1008
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. mars 2025 var lögð fram umsókn Skurnar ehf. , dags. 11. mars 2025, ásamt bréfi TAG teiknistofu, dags. 11. mars 2025, um breytingu á deiliskipulagi Kjalarness, Saltvíkur vegna reits C. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjölga fjölda verpandi fugla á reit C, til samræmis við hækkað nýtingarhlutfall sem var samþykkt árið 2024, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf. , dags. 11. mars 2025. Einnig lögð fram skýrsla Minjastofunnar Íslands frá árinu 2023 um skráningu fornminja innan marka fjögurra byggingareita í landi Saltvíkur á Kjalarnesi. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 3. apríl 2025.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar), sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr.1381/2024, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Svar